




Vinastræti 6
210 Garðabær
Til leigu nýleg björt og rúmgóð íbúð á jarðhæð með palli að Vinastræti í Urriðaholti. Geymsla og stæði í bílakjallara með hleðslustöð. Eldhús og stofa er í sameiginlegu rými, eldhúsið er búið góðum tækjum og uppþvottavél og ísskápur með frysti fylgir íbúðinni. Baðherbergi er með sturtu og þvottaaðstöðu.
Íbúðin er laus 1. október eða eftir samkomulagi. Tveggja mánaða húsaleigutrygging skilyrði og aðeins langtímaleiga í boði. Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en ekki rafmagn. Áhugasamir eru beðnir um að senda skilaboð í gegnum leiguvef Igloo með upplýsingum um sig og meðmæli frá fyrrum leigusala. Aðeins reyklausir, áreiðanleikir og skilvísir einstaklingar með hreint sakavottorð koma til greina. Eigandi íbúðar mun yfirfara umsóknir og haft verður samband við þá sem koma til greina.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
300.000 kr
6 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
2 sep 2026
Leigutímabil
12 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
300.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 600.000 krInnflutningsverð
900.000 kr
Leigt út af Embla Nanna Þórsdóttir