




Njálsgata 16
101 Reykjavík
Falleg og karakterrík 3ja herbergja íbúð með húsgögnum í 101 Reykjavík Til leigu er falleg og einstaklega karakterrík 73,1 m², 3ja herbergja íbúð á miðhæð við Njálsgötu 16, í hjarta Reykjavíkur. Íbúðin er með hlýlegu retró-yfirbragði og leigist með húsgögnum. Hún hentar einstaklega vel fyrir einstakling, par eða tvo einstaklinga sem vilja búa miðsvæðis í fallegu og heimilislegu umhverfi. Íbúðin skiptist í: • Tvö svefnherbergi • Bjarta stofu • Eldhús • Baðherbergi • Geymslu- og þvottaaðstöðu í kjallara (Þvottavél með þurrkara fylgir) Íbúðin er staðsett á frábærum stað í 101 Reykjavík, í göngufæri við Laugaveg, miðbæinn, Hallgrímskirkju, Sundhöll Reykjavíkur, verslanir, veitingastaði og kaffihús. Húsgögn fylgja íbúðinni, sem gerir hana hentuga fyrir þá sem vilja geta flutt inn án þess að þurfa að koma sér upp heilu heimili frá grunni.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Geymsla
Ísskápur
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
15 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 350.000 krInnflutningsverð
700.000 kr
Leigt út af Sigurður Bjarnason