




Hallgerðargata 1A
105 Reykjavík
Nútímaleg og róleg íbúð í eftirsóttu hverfi við sjávarsíðuna í Reykjavík
Íbúðin hentar vel fyrir fagfólk eða litla fjölskyldu - Leigist með húsgögnum.
Svefnherbergi Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með 180 cm hjónarúmi, stórum fataskáp, snyrtiborði og myrkvunargardínum. Annað svefnherbergi: Með myrkvunargardínum, fataskáp og þægilegum 160 cm svefnsófa. Hægt er að skipta svefnsófanum út fyrir rúm eftir þörfum leigjanda. Þriðja herbergi: Er nú innréttað sem skrifstofa og býður upp á rólegt og þægilegt vinnurými.
Rými íbúðarinnar Eldhús: Fullbúið og nútímalegt eldhús með vönduðum heimilistækjum. Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með rúmgóðum sturtuklefa. Stofa og borðstofa: Bjart og hlýlegt alrými í opnu skipulagi sem hentar vel bæði til afslöppunar og samveru.
Þægindi og útisvæði Sér þvottahús: Innan íbúðarinnar er þvottahús með þvottavél, þurrkara, straujárni og strauborði. Svalir: Með hliðar útsýni í átt að sjónum og Hörpu.
Staðsetning og aðgengi Í fjölbýlishúsinu er sameiginlegur inngangur, dyrasímakerfi og lyfta. Hægt er að leggja í bílakjallara undir húsinu með aðgengi inn á stigagang gegn gjaldi. Sameiginleg stæði við hús eru gjaldfrjáls.
Íbúðin hentar einstaklega vel fyrir þá sem vilja njóta virks lífsstíls. Fallegur göngu- og hjólastígur við sjávarsíðuna er í aðeins nokkurra mínútna göngufjarlægð frá húsinu. Laugardalur og Laugardalslaug eru í um 10–15 mínútna göngufjarlægð. Matvöruverslanir, bakarí, kaffihús, apótek og önnur þjónusta eru í þægilegri göngufjarlægð.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Þvottavél
Þurrkari
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
420.000 kr
10 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
15 nóv 2026
Leigutímabil
3 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 420.000 krInnflutningsverð
840.000 kr
Leigt út af Eggert Benedikt Guðmundsson