




Fiskislóð 81
101 Reykjavík
TIL LEIGU – 139 m² GLÆSILEG HÆÐ VIÐ FISKISLÓÐ
Glæsileg 139 m² hæð á 2. hæð við Fiskislóð með sérinngangi og einstaklega fallegu útsýni yfir Flóann og miðborg Reykjavíkur.
Húsnæðið skiptist í 5 skrifstofuherbergi, þar af eru tvö með samliggjandi herbergjum og eitt er sér. Húsnæðið hentar því vel fyrir fjölbreytta starfsemi og ólíkan rekstur.
Auk þess fylgir leigunni möguleiki á að setja 20 feta gám á lóðinni, sem getur verið verðmæt viðbót fyrir fyrirtæki sem þurfa aukið geymslu- eða vinnurými.
Húsnæðið leigist í heild sinni. Hiti er innifalinn í leigu en rafmagn greiðist af leigjanda. Næg bílastæði eru fyrir utan húsið.
Húsnæðið er laust til afhendingar strax.
Athugið: Húsnæðið er ekki til leigu sem íbúðarhúsnæði.
Grandinn er í mikilli og spennandi uppbyggingu þar sem fjölbreytt fyrirtæki, þjónusta og ný starfsemi hafa verið að hasla sér völl. Staðsetningin býður því upp á áhugaverð tækifæri fyrir fyrirtæki sem vilja vera í hverfi í örri þróun.
HÚSNÆÐIÐ ER EINNIG TIL SÖLU
Húsnæðið er í sölumeðferð og áhugasömum er einnig gefinn kostur á að kaupa eignina á hagstæðu verði.
Allar nánari upplýsingar á betristofan.is.
Grandinn er í spennandi uppbyggingu og býður upp á áhugaverð tækifæri bæði fyrir rekstur og fjárfestingu.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Ísskápur
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
420.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
24 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.260.000 krInnflutningsverð
1.680.000 kr
Leigt út af Þuríður Ottesen