




Sandavað 9
110 Reykjavík
Björt og rúmgóð 93 fm íbúð á jarðhæð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Reykjavík. Íbúðin er fullbúin húsgögnum og hentar vel fyrir einstakling, par eða fjölskyldu. Bílastæði er beint fyrir utan og gengið beint inn í íbúðina.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, annað með tvíbreiðu rúmi og hitt með tvöföldum svefnsófa (Betra Bak), rúmgóð stofa, vel búið eldhús, baðherbergi og skrifstofuaðstaða með skjá. Útgengt er á verönd með grilli.
Íbúðin er búin öllum helstu heimilistækjum, þar á meðal uppþvottavél, þvottavél og þurrkara. Wi-Fi er til staðar og innifalið í leiguverði.
Stutt er í alla helstu þjónustu; Bónus, apótek og Domino's eru í um 500 metra fjarlægð og strætóstoppistöð er rétt fyrir utan. Um 10 km eru í miðbæ Reykjavíkur og hægt er að taka einn strætó beint niður í bæ.
Fallegt útivistarsvæði er nánast í bakgarðinum. Aðeins um 500 metrar eru að Bugðu, sem rennur í Elliðavatn, og stutt er í fjölbreyttar göngu- og útivistarleiðir við Elliðavatn, Rauðavatn, Rauðhóla og í Heiðmörk.
Íbúðin leigist með húsgögnum og öllum helstu heimilisbúnaði.
Íbúðin er til leigu í desember og janúar í um 4-7 vikur, allt eftir samkomulagi um tímasetningu og fleira.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Húsreglur
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
380.000 kr
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
1 - 2 mánuðir
Fyrsti mánuður
380.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 380.000 krInnflutningsverð
760.000 kr
Leigt út af Gróa Björg Baldvinsdóttir