




Stóragerði 8
108 Reykjavík
Til leigu – rúmgóð og björt íbúð með bílskúr
Til leigu er falleg og vel skipulögð 116,7 m² eign. Íbúðin er 95,8 m² og bílskúrinn 20,9 m². Eignin leigist helst með með húsgögnum en það fer eftir samkomulagi.
Gengið er inn í rúmgott hol með góðum fataskápum. Til hægri eru bjartar og rúmgóðar stofur með nýlegu parketi, stórum gluggum til suðurs og útgengi á notalegar svalir. Eldhúsið hefur verið endurnýjað á vandaðan hátt og er með ljósri viðarinnréttingu, dökkri borðplötu, gaseldavél, stálháfi, vönduðum bakarofni og innbyggðum örbylgjuofni.
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum: rúmgóðu barnaherbergi og stóru hjónaherbergi með fataskápum á heilum vegg og útgengi á svalir. Baðherbergið hefur verið smekklega endurnýjað og er með sturtuklefa, vegghengdu salerni, innréttingu undir handlaug og sér rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla, fylgir í kjallara og einnig er lítil geymsla innan íbúðar. Sameign og stigagangur eru snyrtileg og vel við haldin. Aðgangur að hjólaherbergi og þvottahúsi í kjallara.
Bílskúrinn er með rafmagni, hita, vatni og rafdrifinni bílskúrshurð.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Ísskápur
Bílskúr
Geymsla
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
450.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
31 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
450.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 900.000 krInnflutningsverð
1.350.000 kr
Leigt út af Hilmar Kjartansson