




Urriðaholtsstræti 26
210 Garðabær
Glæný og stórglæsileg þriggja herbergja, 72 fm íbúð á þriðju hæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri með góðum fataskáp. Úr anddyri er gengið inn á 5 fm baðherbergi með sturtu. Tvö rúmgóð svefnherbergi, 10 og 13 fm með góðum fataskápum. Þvottaherbergi 3,6 fm er inn af íbúð. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 25 fm þar sem gengið er út á 8,8 fm svalir. Í eldhúsi er innbyggður ísskápur og pláss fyrir uppþvottavél. Parket er á gólfum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Geymsla, 6 fm fylgir íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 390.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu. Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Fylgifé
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
390.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Leigutímabil
13 - 36 mánuðir
Fyrsti mánuður
390.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 780.000 krInnflutningsverð
1.170.000 kr
Leigt út af Alma íbúðafélag hf.