




Reyrengi 2
112 Reykjavík
Íbúðin er á annarri hæð með ser inngangi. Forstofa með fataskáp. Eldhús: er rúmgott með hvítmálaðri viðar innréttingu, parket á gólfi. Eldhús er opið við stofu. Stofa og borðstofa eru í einu rúmgóðu og björtu rými með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu og út á suð/vestur svalir. Hjónaherbergi er með skápum, parket á gólfi. Tvö góð herbergi eru með skápum og parketi á gólfi. Baðherbergi er með baðkari, hvítri innréttingu og flísum á gólfi og veggjum. Inn á baðherbergi er tengi fyrir þvottarvél og þurrkara.
Möguleiki á að fá hleðslustöð í bílastæðið en leigjandi þarf að leigja hana sér af ON.
Á jarðhæð er 4,8 fm sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Snyrtileg lóð er umhverfis húsið. Bílastæði í skýli sem tilheyrir íbúðinni er undir húsinu neðan við íbúðina, miðjustæði. Um er að ræða fallega íbúð á góðum stað þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla, þjónustu í Spönginni og Egilshöll og stutt er í falleg útivistasvæði.
Hiti, rafmagn og internet eru greidd af leigjanda. Þessi íbúð er leigð án allra húsagagna til 12 mánaða, laus frá 1.águst 2026.
Gæludýr skoðuð.
Reykingar eru ekki leyfðar innandyra
Fylgifé
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Fiskar leyfðir
Nagdýr leyfð
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Hundar leyfðir
Mánaðarleiga
420.000 kr
Laus frá
1 júl 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 840.000 krInnflutningsverð
1.260.000 kr
Leigt út af Guðmann