




Reykjavíkurvegur 42
102 Reykjavík
Björt 3ja herbergja íbúð í Litla-Skerjafirði – rólegt hverfi, góðar gönguleiðir og stutt í miðbæ Til leigu er björt og vel skipulögð um 79 m², 3ja herbergja íbúð við Reykjavíkurveg í Litla-Skerjafirði, 102 Reykjavík. Íbúðin er í rólegu og grónu íbúðarhverfi með góðum bílastæðum, fallegum gönguleiðum meðfram sjónum og stutt í Háskóla Íslands, miðbæ Reykjavíkur, skóla og aðra þjónustu. Íbúðin skiptist meðal annars í: • Sérinngang og forstofu • Rúmgóða stofu og borðstofu • Glæsilegt eldhús með innbyggðum ísskáp og frysti, veggofni, örbylgjuofni, helluborði og uppþvottavél • Gott hjónaherbergi með ríkulegu skápaplássi • Minna svefnherbergi sem getur rúmað tvö rúm eða nýst sem barnaherbergi/vinnuaðstaða • Óvenju rúmgott þvotta- og vaskahús • Baðherbergi með sturtu • Sérnotareit út í garð • Parket og flísar á gólfum • Reyklaus íbúð Leiguskilmálar: • Leiga 360.000 kr. á mánuði án húsgagna 390.000 með húsgögnum • Mögulegt er að leigja íbúðina með húsgögnum gegn sérstöku samkomulagi • „Langtímaleiga æskileg. Leigutími og upphaf eftir samkomulagi.“ • Trygging samkvæmt samkomulagi • Meðmæli eða upplýsingar um fyrri leigusögu óskast • Íbúðin er laus frá 1. október 2026 Íbúðin hentar vel einstaklingum, pörum eða minni fjölskyldu sem leitar að rólegu og vönduðu heimili á góðum stað. Hafið samband ef óskað er eftir öðrum leigutíma eða öðru fyrirkomulagi — ýmsar lausnir geta komið til greina eftir samkomulagi.
Fylgifé
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Örbylgjuofn
Ísskápur
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
360.000 kr
10 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 720.000 krInnflutningsverð
1.080.000 kr
Leigt út af Ísleifur Ottesen