




Mosarimi 2
112 Reykjavík
Virkilega falleg og björt, mikið endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi af svölum á góðum stað miðsvæðis í Grafarvogi.
Komið er inn á rúmgóða forstofu með fataskáp. Baðherbergið sem hefur allt verið nýlega endurnýjað er flísalgt í hólf og gólf. Þar er falleg innrétting, upphengt salerni og walk in sturta. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu og er mjög góð innrétting í kringum tækin.
Svefnherbergin í íbúðinni eru þrjú, þau eru rúmgóð og björt. Stór fataskápur er í hjónaherberginu.
Eldhúsið er með fallegri nýrri innréttingu og tækjum, þar er mikið skápapláss og góð vinnuaðstaða.
Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu rými með stórum gluggum. Útgengt er úr stofu út á sér svalir.
Í sameigninni er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Íbúðin er með nýju parketi, nýjum flísum og nýjum innihurðum. Búið er að skipta um gler og ytra byrði glugga á annari hlið hússins.
Sér bílastæði fyrir framan húsið fylgir eigninni.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 5 leigutakar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
420.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 jan 2027
Leigutímabil
9 - 12 mánuðir
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 840.000 krInnflutningsverð
1.260.000 kr
Leigt út af Ingibjörg Rafnsdóttir