




Móavellir 2
260 Reykjanesbær
Ábending til umsækjenda ! Leigusali metur umsóknir útfrá þeim upplýsingum sem fylgja með hverri og einni umsókn. Það er því kostur ef fólk getur sagt aðeins frá sjálfu sér í umsókninni.
Til leigu - falleg 4ra herb. íbúð í lyftuhúsi. Laus strax. 4.herbergja 95 m2 endaíbúð í lyftuhúsi með fallegu útsýni á 3.hæð með suðursvölum. Eignin er staðsett miðsvæðis í Reykjanesbæ. Eignin skiptist í rúmgóða stofu og borðstofu með útgengi út á stórar suðursvalir, fallegt eldhús, nýuppgert baðherbergi, þrjú svefnherbergi og geymsla/fataherb sem er inn af hjónaherbergi. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á fyrstu hæð. Göngufæri er í helstu þjónustu, m.a íþróttamannvirki, leikskóla, verslunarkjarna, líkamsrækt og fleira. Ísskápur fylgir með. Leigufjárhæð er kr. 340.000.- á mánuði með hússjóði og hita, en án rafmagns.Í boði er leigusamningur ótímabundinn með 3ja mán. uppsagnarfresti. Trygging er andvirði þriggja mánaða húsaleigu í formi bankaábyrgðar auk meðmæla. Gæludýrahald er ekki heimilt. Leitað er eftir skilvísum og reglusömum leigjanda. Reykingar eða vape innan íbúðar ekki leyft. Fyrirspurnum er aðeins svarað á tölvupósti ekki í síma. Áhugasamir geta sent fyrirspurn á elisabet@valfell.is ásamt viðeigandi upplýsingum. Eigandi íbúðar mun yfirfara umsóknir og haft verður samband við þá aðila sem koma til greina.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
340.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
340.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.020.000 krInnflutningsverð
1.360.000 kr

Leigt út af Tryggðarbönd ehf.