




Ægissíða 18
610 Grenivík
Eingöngu vetrarleiga. frá október 2026 - Júní 2027
Fallegt og einstaklega notalegt einbýlishús til leigu yfir vetrartímann á sjávarlóð við Ægissíðu 18 í Grenivík. Húsið er 104,6 m² að stærð, þar af er bílskúr 25,3 m², og stendur á 525 m² eignarlóð með frábæru útsýni og sólríkri verönd til vesturs.
Nýlegt gólfefni hefur verið lagt á fyrstu hæð og húsið er í góðu ásigkomulagi.
Skipulag eignarinnar:
Kjallari:
Svefnherbergi með gólfhita og flotuðu gólfi Geymsla með glugga Sturtuaðstaða og þvottaherbergi með flísum og flotuðu gólfi Hæð:
Forstofa með parketi og hvítmáluðum panil Eldhús með hvítum sprautulökkuðum innréttingum og nýlegu gólfefni Stofa með parketi, gluggum til þriggja átta og útgengi á rúmgóða timburverönd (25–30 m²) Snyrting með dúk á gólfi og efri skáp Ris:
Opið fjölnota rými með spónaparketi og panelklæddu lofti og veggjum Gluggar til beggja enda hússins Nýtist sem svefnrými með svefnaðstöðu fyrir fjóra og fataskápum Bílskúr: 25,3 m², malargólf og timburklæddir veggir. Bílaplan með perlumöl fyrir framan.
Annað: Húsið hentar einstaklega vel til dvalar yfir vetrartímann í rólegu og fallegu sjávarþorpi. Leigist með húsgögnum og er tilbúið til afhendingar í lok október eftir samkomulagi.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Þurrkari
Þvottavél
Eldhús
Með húsgögnum
Húsreglur
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Mánaðarleiga
220.000 kr
19 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
6 - 9 mánuðir
Fyrsti mánuður
220.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 440.000 krInnflutningsverð
660.000 kr
Leigt út af Eyþór Möller Árnason