




Flétturimi 7
112 Reykjavík
102 fm 4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð að Flétturima 7 í Grafarvogi í Reykjavík. Barnvænt hverfi og göngufæri í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, íþróttasvæði, sundlaug, verslanir o.fl. Íbúðin er laus til afhendingar við undirskrift samnings.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, lítið þvottahús og stórar svalir með útsýni til suðurs og vesturs. Ísskápur með frysti, uppþvottavél, þvottavél og þurrkari fylgja með íbúðinni. Sér bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og 8 fm geymsla í kjallaranum getur fylgt með.
Athugið að íbúðin er reyklaus og ekki er leyfilegt að vera með gæludýr í öllum stigaganginum vegna bráðaofnæmis nágranna.
Nánari lýsing: Forstofa er inn um rúmgóðan stigapall með öðrum þremur íbúðum. Innan íbúðar eru drapplitaðar flísar á gólfi og fataskápur. Stofa er inn af forstofu. Björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Glerveggur skilur á milli forstofu og stofu. Herbergin eru alls þrjú. Öll með viðarfataskápum upp í loft. Eldhús er með innréttingu á tveimur veggjum - milli efri og neðri skápa eru flísar. Drapplitaðar gólfflísar. Út frá eldhúsi er gengið út á svalir. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með bláum og ljósum flísum. Upphengt salerni, baðkar með sturtu og innréttingar við vask. Lítið þvottahús er innan íbúðar. Flísar á gólfi. Bílastæði í bílakjallara og geymsla. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Einhver húsgögn geta fylgt með íbúðinni eins og tvær kommóður og lítil eldhús eyja.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Þvottavél
Þurrkari
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
360.000 kr
20 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
4 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 720.000 krInnflutningsverð
1.080.000 kr
Leigt út af Svava Björk Ólafsdóttir