




Hraunbraut 6C
805 Selfoss (dreifbýli)
Nýlegt og glæsilegt, fullbúið 100fm 4ra herbergja raðhús að Borg, Grímsnesi. Fjölskylduvænt hverfi með laust leikskólapláss. Sveitasæla rétt utan Reykjavíkur.
Íbúðin er 4ra herbergja og skiptist upp í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, og opið rými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Innfeld lýsing í öllum rýmum. Útgengt í suðurgarð um svalahurð í stofu. Vönduð eldhúsinnrétting og skápar frá HTH. Parket á gólfum, og flísar á baðherbergi. Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni. Salerniskassinn innfeldur í vegg, sem gefur baðherberginu nútímalegt og stílhreint útlit. Innsteypt þröskuldarlaus sturta með öryggisgleri. Hágæða blöndunartæki. Gólfhiti er í öllum rýmum, með hitastýringu fyrir sérhvert svæði. Vélrænt útsog er í rakarýmum og eldhúsi. Klæðning hússins er vönduð lituð bárujárnsklæðning, og allir gluggar og útidyrahurð eru úr lituðu áli. 2 bílastæði framan við húsið. Beint fyrir framan raðhúsið er glænýr leikvöllur.
Borg í Grímsnesi er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Í göngufæri er a finna sundlaug, leikskóla, grunnskóla, og þjónustu við eldri borgara. Ný verslun, bensínstöð og hleðslustöð fyrir rafbíla, líkamsræktarsalur og fleiri mannvirki eru ýmist í byggingu eða í undirbúningi. Enginn biðlisti er í leikskólann og grunnskólann, og mötuneyti sveitafélagsins sér ungviðinu fyrir hollum íslenskum þjóðarréttum. Sveitafélagið hefur ítrekað verið valið besta sveitafélag landsins í þjónustukönnunum. Svæðið er paradís fyrir útivistarfólk. Miklir atvinnumöguleikar á svæðinu. Selfoss er í 15mín akstursfjarlægð, og Reykjavík í c.a. 45mín akstursfjarlægð. Frekari upplýsingar um svæðið og sveitafélagið má finna hér: https://www.gogg.is/
Frekari upplýsingar um þessa fasteign veitir IMIROX í tölvupósti: info@imirox.com eða í síma 777-2500.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
290.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
22 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
290.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 580.000 krInnflutningsverð
870.000 kr
Leigt út af Bjarni Bærings